Um mig

Ég heiti Inga Rún Björnsdóttir og starfa sem sálfræðingur og jógakennari. Ég starfaði um árabil sem sálfræðingur í taugasálfræðiþjónustu Landspítala og sem stundakennari í klínískri taugasálfræði við HÍ. Í dag starfa ég sem sálfræðingur hjá Betri svefn, SheSleep og Sálfræðiráðgjöfinni. Ég lauk B.A. prófi í sálfræði frá HÍ 2005 og mastersprófi frá Kaupmannahafnarháskóla 2015.
Ég hef mikinn áhuga á andlegri heilsu, innra jafnvægi og sérstaklega mikilvægi streitustjórnunar, slökunar, núvitundar og svefns.
Ég sinni aðallega meðferð við svefnvanda, kvíða, depurð, þunglyndi, streitu og lágu sjálfsmati með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og ACT (Acceptance and Commitment Therapy). Hægt er að bóka einstaklingstíma hjá mér hér: noona.is/salogsvefn
Þar að auki er ég menntuð jógakennari frá Jógasetrinu og jóga nidra kennari frá Amrit Institute og sinni jógakennslu samhliða störfum mínum sem sálfræðingur. Námskeið sem ég leiði á næstunni má finna undir “Jóga og slökun” hér fyrir ofan eða með því að smella hér að neðan:
Sjá nánari lýsingu á störfum mínum sem sálfræðingur á: www.salfraedingar.com og www.betrisvefn.is
