Einnar mínútu núvitundarhugleiðsla

- Sestu í stól með háu baki. Reyndu að hafa líkamann aðeins frá stólbakinu svo hryggurinn fái ekki stuðning af því. Gott er að láta fæturna hvíla á gólfinu og draga aðeins úr spennu í líkamanum með því að láta hökuna síga aðeins niður í átt að bringu.
- Beindu athyglinni að andardrættinum. Taktu eftir loftinu sem streymir rólega inn í líkamann og út aftur. Taktu eftir skynjuninni í hverri innöndun og hverri fráöndun án þess að reyna að breyta önduninni eða búast við einhverju sérstöku.
- Hugurinn getur reikað á meðan á æfingunni stendur. Þegar þú tekur eftir því skaltu rólega færa athyglina aftur að andardrættinum, án þess að dæma sjálfa/n/t þig eða hafa áhyggjur af því að hugurinn hafi reikað. Það er eðlilegur hluti af æfingunni.
- Með tímanum getur hugurinn orðið rólegur og kyrr eins og lygnt vatn. Stundum gerist það, stundum ekki. Ef þú finnur fyrir sterkum tilfinningum eins og pirringi eða reiði, leyfðu þeim þá að vera án þess að reyna að bæla þær eða ýta þeim frá. Þú getur sett orð á þær, “ég tek eftir pirringi núna”, eða “aha, þarna er pirringurinn mættur”. Leyfðu þeim svo að líða hjá eins og ský á himni.
- Þegar mínútan er liðin getur þú opnað augun og litið rólega í kringum þig.
- Þú getur nefnt fimm hluti sem þú sérð í rýminu. Fjóra hluti sem þú getur snert. Þrjá hluti sem þú heyrir. Tvo hluti sem þú finnu lykt af, og eitt bragð sem þú finnur.
- Haltu svo áfram að gera það sem þú varst að gera áður en þú settist niður til að gera þessa æfingu.
