
4 vikna námskeið með Ingu Rún
Nærandi nidra námskeið
Þriðjudagar 10. – 31. mars kl 19:00 – 20:15
Nærandi námskeið með áherslu á mýkt, sjálfsmildi, streitulosun og djúpa slökun. Í upphafi hvers tíma er stutt fræðsla og eru þátttakendur svo leiddir inn í mjög milt, mjúkt jóga og langa jóga nidra djúpslökun og gong tónheilun. Þátttakendur fá jóga nidra hljóðupptökur til afnota heima, þannig að nidra ferðalagið getur haldið áfram á milli tímanna og eftir námskeiðið. Hentar vel byrjendum sem og lengra komnum.
Námskeiðið getur gagnast þeim sem:
- Finna fyrir streitu, álagi eða þreytu og vilja endurnýja orkuna.
- Vilja róa taugakerfið á áhrifaríkan hátt.
- Vilja meiri mildi, sjálfsumhyggju og skýrari fókus.
Þetta færð þú:
- Fjögur 75 mín námskeiðskvöld með Ingu Rún Björnsdóttur í Jógasetrinu.
- Rými til að rækta innra jafnvægi og endurnýja orkuna.
- Fræðslu um einföld og hagnýt verkfæri til að róa taugakerfið.
- Tvær jóga nidra hljóðupptökur til eignar sem þú getur notað að vild.
Inga Rún er jógakennari og jóga nidra kennari. Hún lauk 200 tíma jógakennaranámi Jógasetursins vorið 2025 og hafði áður lokið advanced jóga nidra kennararéttindum frá Amrit Yoga Institute á vegum Kamini Desai. Inga Rún hefur síðan þá reglulega leitt mjúkt jóga, nidra djúpslökun og gong tónheilun.
En hvað er jóga nidra? Jóga nidra er leidd meðvituð djúpslökun þar sem líkaminn fær að slaka alveg á, en hugurinn helst vakandi. Þú liggur á bakinu, með teppi yfir þér og púða undir höfði og fylgir rödd leiðbeinanda sem fer með þig í gegnum t.d. líkamskönnun, öndunaræfingar og sjónræna ímyndun. Það sem gerir jóga nidra sérstakt er að það leiðir okkur í ástand milli svefns og vöku, þar sem taugakerfið nær djúpri hvíld. Jógarnir segja gjarnan að 45 mínútna jóga nidra geti haft jafn endurnærandi áhrif á líkama og huga og 2-3 klst. svefn!
Skoðaðu hvaða námskeið og viðburði ég leiði á næstunni og bókaðu pláss:
