Frí jóga nidra æfing

Original price was: 500 kr..Current price is: 0 kr..
Product on sale

Athugið! Til að fá æfinguna frítt þarftu að skrá þig á póstlistann. Skráðu þig því endilega á póstlistann sem þú finnur neðst á upphafssíðunni til að frá 100% afsláttarkóða. Mundu að staðfesta skráninguna og athuga hvort pósturinn hafi lent í rusl/junk/spam möppu. Þegar þú hefur skráð þig á póstlistann smellir þú á “Skrá mig” hér á þessari síðu og undir “Add coupon” slærðu inn afláttarkóðann sem þú fékkst í tölvupósti og smelli á “Apply” og svo “Place Order”. Þá ættir þú að geta hlaðið niður æfingunni beint af síðunni sem opnast og einnig í gegnum tölvupóstinn sem þú færð í kjölfarið.

IAM Yoga Nidra æfinga til niðurhals.

IAM Yoga Nidra æfinga leidd af Ingu Rún. Þegar þú hefur staðfest kaupin færðu um leið hlekk á niðurhal sem þú getur svo vistað í tölvunni/símanum og hlustað  hvar og hvenær sem hentar þér. Tilvalið fyrir þig sem vilt stunda jóga nidra í þínu eigin rými, á þínum forsendum, þegar þér hentar. Aðgengi að upptökunum rennur aldrei út.

Æfingin sem þú færð er:

Sofðu vært (mjúk lending) (20 mín): Þessi æfing er hönnuð til að hjálpa þér að ná djúpri slökun á kvöldin og lenda mjúklega inn í nóttina. Tilvalið að sofna út frá þessari æfingu ef þú átt erfitt með svefn.

En hvað er jóga nidra (einnig nú gjarnan þekkt sem Non-Sleep Deep Rest, NSDR) Jóga nidra, oft kallaður “jógískur svefn”, er leidd meðvituð djúpslökun þar sem líkaminn fær að slaka alveg á, en hugurinn helst vakandi á ákveðnu stigi meðvitundar. Þú liggur á bakinu, með teppi yfir þér og púða undir höfði og fylgir rödd leiðbeinanda sem fer með þig í gegnum líkamskönnun, öndunaræfingar og sjónræna ímyndun. Það sem gerir jóga nidra sérstakt er að það leiðir okkur í ástand milli svefns og vöku, þar sem taugakerfið nær djúpri hvíld. Jógarnir segja gjarnan að 45 mínútna jóga nidra geti haft jafn endurnærandi áhrif á líkama og huga og 2-3 klst. svefn!