Gjafabréf á 8 vikna jóga nidra námskeið

29.800 kr.

Gjafabréf í 8 vikna jóga nidra námskeið hjá Ingu Rún. Þegar þú hefur gengið frá greiðslu færðu gjafabréfið sent í tölvupósti og þú getur annað hvort prentað það út og gefið einhverjum sem þér þykir vænt um, eða áframsent tölvupóstinn á viðkomandi <3

Gjafabréf á 8 vikna jóga nidra námskeið hjá Ingu Rún er nærandi gjöf.

Í tímunum er lögð áhersla á djúpa slökun, mýkt og sjálfsmildi. Þátttakendur fá tækifæri til að hægja á, sleppa tökum á streitu og rækta meiri ró og jafnvægi.

Eftir að þú hefur staðfest kaupin færðu gjafabréfið í tölvupósti og upplýsingar um hvernig þú gengur frá greiðslu. Til þess að nota gjafabréfið þarf einfaldlega að hafa samband við inga@inga.run og greina frá að viðkomandi vilji skrá sig á tiltekið námskeið og nota gjafabréf til að greiða.

Jóga nidra, oft kallaður “jógískur svefn”, er leidd meðvituð djúpslökun þar sem líkami og hugur slaka vel á. Þú liggur á bakinu, með teppi yfir þér og púða undir höfði og fylgir rödd leiðbeinanda sem fer með þig í gegnum líkamskönnun, vöðvaspennuæfingar og öndunaræfingar. Jógarnir segja gjarnan að 45 mínútna jóga nidra geti haft jafn endurnærandi áhrif á líkama og huga og 2-3 klst. svefn!