1.nòv Svefn og sjálfsmildi í skammdeginu (fræðsla- og jóga nidra)
Sunnudaginn 1. nóvember. Viðburðurinn hefst kl. 13.00 og lýkur kl. 15.00.
Staðsetning: Samkennd Heilsusetur, Tunguhálsi 19, 2.hæð, 110 Reykjavík.
Eftir skráningu færðu sendar greiðsluupplýsingar í tölvupósti.
Svefn og sjálfsmildi í skammdeginu er nærandi fræðslu- og jóga nidra viðburður með Ingu Rún Björnsdóttur sálfræðingi, svefnráðgjafa og jógakennara. Þetta er tækifæri til að staldra við, hlusta á eigin þarfir og skapa rými fyrir hvíld og endurheimt í amstri hversdagsins. Engin reynsla af jóga nidra eða hugleiðslu er nauðsynleg.
✨ Við byrjum viðburðinn á hugleiðslu og ilmandi tebolla eða kakóbolla.
✨ Svo tekur við fræðsla um hvernig við getum hlúð að góðum svefni og andlegri heilsu í skammdeginu. Við skoðum hvernig skammdegið og fleiri þættir geta haft áhrif á svefn, orku og líðan og förum yfir hagnýt ráð til að styðja við svefnvenjur og efla vellíðan yfir dimmustu mánuði ársins. Hjá mörgum eykst streita þegar jólin nálgast og verkefnum og væntingum fjölgar. Við skoðum hvernig streita hefur áhrif á líkama og huga og förum yfir hagnýt ráð til að draga úr streitu og skapa jafnvægi og ró.
✨ Að fræðslu lokinni tekur við löng nærandi jóga nidra slökun þar sem áhersla er á sjálfsmildi, streitulosun, þakklæti og djúpa slökun. Jóga nidra, oft kallað „jógískur svefn“, er leidd djúpslökun, ákveðin hugleiðslutækni. Þú kemur þér þægilega fyrir í liggjandi (eða sitjandi) stöðu með teppi yfir þér og fylgir rödd leiðbeinanda í gegnum líkamsskönnun, vöðvaspennu- og öndunaræfingar sem styðja við ró í taugakerfinu.
Jógadýnur, púðar, augnhvílur og teppi eru á staðnum. Ef þú vilt liggja á mjúkri dýnu í slökuninni mæli ég með að koma með eigin dýnu.
Leiðbeinandi: Inga Rún Björnsdóttir sálfræðingur, svefnráðgjafi og jógakennari.
Aðeins 12 pláss í boði.
Ég hlakka til að sjá þig.
You might also like
-
Gjafabréf á 4 vikna jóga nidra námskeið
14.900 kr.









