Kyrrð á Klambra – Jóga nidra og gong slökun – Sumarið 2026

Viðburðirnir eru liðnir. Skráðu þig á póstlistann til að fá upplýsingar um hvernæ fleiri svona tímar verða í boði.

Langar þig að gefa líkama og huga tækifæri til að slaka á í fallegu umhverfi undir berum himni?

Í sumar býðst þér að taka þátt í ókeypis jóga nidra og gong slökun á Klambratúni. Tímarnir eru opnir öllum.

✨Skráðu þig á póstlistann á www.inga.run og fáðu fría jóga nidra upptöku í tölvupósti.

Jóga nidra, oft kallað „jógískur svefn“, er leidd slökun þar sem líkami og hugur fá djúpa hvíld. Þú kemur þér þægilega fyrir og fylgir rödd leiðbeinanda sem leiðir þig í gegnum öndunar-, vöðvaspennu- og núvitundaræfingar ásamt gong slökun.

Markmið verkefnisins er að hvetja til útiveru, slökunar, aukinnar vellíðanar og samveru í nærumhverfinu.

✨ Engin fyrri reynsla af jóga eða jóga nidra er nauðsynleg.
✨ Tímarnir henta bæði byrjendum sem og lengra komnum.
✨ Aðgangur er ókeypis.

📍 Hvar?
Klambratún, 105 Reykjavík.
Nákvæm staðsetning er á horni Flókagötu og Lönguhlíðar (svæðið þar sem börn renna sér á sleða á veturna).

📅 Hvenær?
• Sunnudagurinn 28. júní kl. 14.00-14.45
• Sunnudagurinn 5. júlí kl. 14.00-14.45
• Sunnudagurinn 12. júlí kl. 14.00-14.45  fellur niður vegna veðurs
• Sunnudagurinn 19. júlí kl. 14.00-14.45
• Sunnudagurinn 26. júlí kl. 14.00-14.45

Athugið að tímasetningar eru háðar veðri. Fylgstu með á Facebook-síðu viðburðarins varðandi mögulegar breytingar eða frestanir eða með því að skrá þig á póstlistann minn á www.inga.run 

🧘 Hvað er gott að hafa með sér?
• Jógadýnu eða undirlag til að liggja á
• Teppi
• Púða undir höfuð
• Púða undir hné (ef það hentar þér)
• Augnhvílu
• Fatnað við hæfi veðurs

Þú getur einnig verið með án þess að koma með nokkuð með þér.

Skráning er ekki nauðsynleg en mér þætti vænt um ef þú skráir “going” eða “interested” á facebook viðburðinum svo ég fái hugmynd um áhugann.

Umsjón með verkefninu hefur Inga Rún Björnsdóttir jógakennari.

Verkefnið er styrkt af Hverfissjóði Reykjavíkurborgar.

💙 Verið hjartanlega velkomin í stund kyrrðar, slökunar og endurnæringar á Klambratúni í sumar.