Vinnustaða slökun og hugleiðsla
Inga Rún Björnsdóttir sálfræðingur og jógakennari býður vinnustöðum upp á endurnærandi slökun sem miðar að því að kyrra hugann, losa um spennu, róa taugakerfið og efla vellíðan starfsfólks.
Hver tími hefst á stuttri og hagnýtri fræðslu um streitu, taugakerfið og hvernig slökunar- og núvitundaraðferðir geta stutt við andlega og líkamlega heilsu. Að því loknu tekur við djúp slökun með leiðsögn sem hentar fólki með ólíka reynslu af slökun og hugleiðslu.
Þessi þjónusta hentar vel fyrir vinnustaði sem vilja:
✨ Stuðla að endurnýjun andlegrar og líkamlegrar orku starfsfólks
✨ Draga úr streitu og efla vellíðan á vinnustaðnum
✨ Kynna gagnlegar og áhrifaríkar aðferðir til streitustjórnunar og slökunar
✨ Styðja við betri svefn, aukna einbeitingu og jafnvægi í daglegu lífi
Tímarnir henta vel sem hádegisviðburður, í lok vinnudags eða sem hluti af heilsueflingu á vinnustað. Hægt er að bóka bæði staka viðburði og reglulega tíma, allt eftir þörfum vinnustaðarins.
🕰️ Tímalengd: 30–50 mínútur, eða eftir samkomulagi
🏢 Staðsetning: Á vinnustaðnum eða í gegnum fjarfund ef óskað er
🇮🇸 🇬🇧 Tungumál: íslenska eða enska
Titill á ensku: Pause & Reset: A moment to breathe and recharge
📩 Fyrirspurnir, verðtilboð og bókanir: inga@inga.run


