Pop-up: Mýkt & Myrkur 11. ágúst FULLBÓKAÐ
🌞 🌘 🌑 🌒 🌞
Viðburðurinn er liðinn. FULLBÓKAÐ! Skráðu þig á biðlista með því að senda póst á inga@inga.run
Nærandi kvöldstund þriðjudagskvöldið 11. ágúst í tilefni almyrkvans sem verður degi síðar. Viðburðurinn hefst kl. 19.00 og lýkur kl. 20.00. Ilmandi tebolli í boði í upphafi viðburðarins. Staðsetning: Samkennd Heilsusetur, Tunguhálsi 19, 2.hæð, 110 Reykjavík.
Almyrkvinn minnir okkur á að jafnvel þegar myrkrið leggst yfir um stund er það aðeins hluti af hringrás náttúrunnar og ljósið finnur alltaf sína leið aftur. Við förum í ferðalag inn á við með áherslu á mýkt, sjálfsmildi, streitulosun og djúpa slökun. Rými til að mæta sér með sjálfsmildi, slaka á, endurnýja orkuna og “hlaða batteríin”. Tækifæri til að sleppa takinu á því sem þú þarft ekki lengur og stíga inn í nýtt tímabil með mýkt og mildi.
Í hlýlegu og nærandi rými býðst þátttakendum einnig að draga spil með fallegum skilaboðum sem styðja við innsæi, sjálfsmildi og innri tengingu. Þessi mjúka byrjun skapar notalegt rými til að stíga inn í kyrrð, hvíld og endurnæringu.
Kvöldið hefst á léttum og mjúkum teygjum sem losa um spennu í líkamanum og svo færum við okkur mjúklega yfir í djúpslökun og gong slökun. Hentar vel byrjendum sem og lengra komnum. Engin reynsla af jóga eða jóga nidra þörf. Eftir djúpa hvíld skapast oft rými fyrir nýjar hugmyndir, innsýn eða tilfinningar sem getur verið gott að festa á blað, svo ef þú átt dagbók eða minnisbók sem þú vilt skrifa í gæti verið gott að taka hana með. Það er engin skylda að skrifa, heldur er þetta aðeins boð um að gefa því sem vaknar innra með þér smá rými áður en þú heldur út í kvöldið á ný.
Jóga nidra, oft kallaður “jógískur svefn”, er leidd djúpslökun þar sem líkaminn fær að slaka alveg á, og hugurinn fær einnig djúpa hvíld í vakandi ástandi. Þú liggur á bakinu, með teppi yfir þér og púða undir höfði og fylgir rödd leiðbeinanda sem fer með þig í gegnum vöðvaspennuæfingar, öndunaræfingar og núvitundaræfingar.
Jógadýnur, púðar, augnhvílur og teppi eru á staðnum.
Leiðbeinandi/umsjón: Inga Rún Björnsdóttir sálfræðingur og jógakennari.
Sjá Facebook viðburð
Hlakka til að sjá þig
You might also like
-
Gjafabréf á 8 vikna jóga nidra námskeið
29.800 kr.
Frequently bought together
-
Kyrrð á Klambra – Jóga nidra og gong slökun – Sumarið 2026
-
Nærandi 4 vikna jóga nidra námskeið
16.900 kr. -
Orkuskot & Endurheimt – Föstudags Pop-Up 14.ágúst (Fullbókað)
4.500 kr. -
Stakur jóga nidra tími
4.500 kr. -
Svefn, seigla og sjálfsmildi – NETNÁMSKEIÐ
42.000 kr. -
Svefn, seigla og sjálfsmildi – Staðnámskeið
42.000 kr.










