Orkuskot & Endurheimt – Föstudags Pop-Up 14.ágúst (Fullbókað)
Pop-up viðburður: Nærandi föstudagskvöld með orku, gleði og djúpri hvíld. Vert er að taka fram að þetta er áfengislaus viðburður. Viðburðurinn er föstudagskvöldið 14. ágúst og hefst kl. 19.00 og lýkur kl. 20.15. Staðsetning: Samkennd Heilsusetur, Tunguhálsi 19, 2.hæð, 110 Reykjavík.
Orkuskot & Endurheimt er nærandi kvöld þar sem við sækjum okkur orkuskot með því að hreyfa okkur frjálslega við vel valda hressandi, skemmtilega tónlist og njótum svo langrar jóga nidra djúpslökunar í kjölfarið. Engin fyrirfram ákveðin spor, engin krafa um frammistöðu – aðeins gleðin við völd við að hreyfa líkamann, losa um spennu og vekja orkuna til lífs. Að því loknu gefst tími til að njóta ilmandi tebolla og draga gyðju- eða náttúruspil með hvetjandi, nærandi skilaboðum, áður en við færum okkur yfir í Jóga Nidra djúpslökun, sem styður við endurheimt og góðan nætursvefn.
Ath! Einnig býð ég uppá svona lokaða viðburði, t.d. fyrir saumaklúbba, vinnustaði og fleira. Sendið endilega fyrirspurn í inga@inga.run um slíkt fyrir verðtilboð og dagsetningar.
Þetta er kvöld fyrir þig sem vilt:
- Hreyfa líkamann og lyfta andanum.
- Njóta góðrar tónlistar og afslappaðrar stemningar.
- Upplifa endurnærandi og afslappað kvöld.
- Fara fersk/ur/t og endurnærð/ur/t inn í helgina.
Engin reynsla af jóga eða jóga nidra þörf. Eftir djúpa hvíld skapast oft rými fyrir nýjar hugmyndir, innsýn eða tilfinningar sem getur verið gott að festa á blað, svo ef þú átt dagbók eða minnisbók sem þú vilt skrifa í gæti verið gott að taka hana með. Það er engin skylda að skrifa, heldur er þetta aðeins boð um að gefa því sem vaknar innra með þér smá rými áður en þú heldur út í kvöldið á ný.
Jóga nidra, oft kallaður “jógískur svefn”, er leidd djúpslökun. Þú kemur þér vel fyrir á jógadýnunni, með teppi yfir þér og púða undir höfði og fylgir rödd leiðbeinanda sem fer með þig í gegnum vöðvaspennuæfingar, líkamsskönnun og öndunaræfingar.
Jógadýnur, púðar, augnhvílur og teppi eru á staðnum.
Aðeins pláss fyrir 16 manns. Vert er að taka fram að þetta er áfengislaus viðburður.
Leiðbeinandi/umsjón: Inga Rún Björnsdóttir sálfræðingur og jógakennari.
Ég hlakka til að sjá þig
You might also like
-
Gjafabréf á 8 vikna jóga nidra námskeið
29.800 kr.
Frequently bought together
-
Kyrrð á Klambra – Jóga nidra og gong slökun – Sumarið 2026
-
Nærandi 4 vikna jóga nidra námskeið
16.900 kr. -
Pop-up: Mýkt & Myrkur 11. ágúst FULLBÓKAÐ
-
Stakur jóga nidra tími
4.500 kr. -
Svefn, seigla og sjálfsmildi – NETNÁMSKEIÐ
42.000 kr. -
Svefn, seigla og sjálfsmildi – Staðnámskeið
42.000 kr. -
Vinnustaða slökun og hugleiðsla












